English below
Fyrsta Q-kvöld ,,haustsins”.
Það er aldrei kalt eða hráslagalegt þegar hinsegin stúdentar og vinir þeirra hittast. Þess vegna ætlum við að framlengja sumarið og fagna nýju skólaári með kynningakvöldi/nýnemakvöldi/skemmtikvöldi hrærðu saman í eitt ógleymanlegt Q-kvöld, föstudaginn 2. september klukkan 20:00 í regnbogasal Samtakanna ’78.
Stjórn Q verður á staðnum og ætlar kynna möguleika á þátttöku í starfi félagsins næsta skólaár.
Gestum býðst að gerast meðlimir í félaginu á einungis 1.500 kr.-, en starfsemi Q er að mestu rekin með stuðningsgjaldi meðlima þess.
Nýjum meðlimum býðst ókeypis bjór eða bolla, á meðan byrgðir endast, og verð á drykkjum verður stillt í hóf fyrir fátæka námsmenn.
Aðgangur ókeypis og allir, bókstaflega allir, eru velkomnir.
Um félagið:
Stefna Q er að bjóða upp á opið og öruggt félagsstarf fyrir hinsegin háskólanema og aðra áhugasama um hinsegin málefni á aldrinum 18-35, en ekki síður að vera sýnilegt hagsmunafélag innan Háskóla Íslands og veita stuðning fyrir hinsegin nemendur.
Stjórn Q vonast til að standa fyrir vikulegum félagskvöldum og hvetur alla sem hafa hugmyndir að kvikmyndasýningum, málþingum, verkefnum sem þeir myndu vilja framkvæma að vera í sambandi við stjórnina á gay@hi.is eða mæta á Q-kvöld og kynna hugmyndir sínar.
First Q-night of the “fall”
It is never cold or gloomy when queer students and their friends gather. We intend to extend the summer and celebrate a new school year with an introduction-/orientation-/social-night shaked together into an unforgettable Q-night, Friday, September 2nd, at 8pm at Samtökin ’78, Laugavegi 3,4th. Floor.
The board of Q will be meeting and greeting new and old friends, and offering information on schedule for this fall and opportunities for participation.
You can become a member of Q for only 1.500 kr.-
New member get a free beer or punch and the beverages will be sold at a reasonable student price.
Free admission and everyone, i.e. e-v-e-r-y-o-n-e, is welcome.
About Q
Q aims to organize safe and open social events for queer students, their friends and everyone insterested in LBGT issues. Furthermore, to be a visible force within the University of Iceland and to offer support to queer students.
For this fall, the board of Q hopes to host weekly events and urges everyone who has an idea they want to pursue, to contact Q at gay@hi.is or pay us a visit the following Q-night.

áhugvert að hlusta á þetta http://www.bbc.co.uk/news/uk-14901895